TENGLAR
HEIM
GERA ATHUGASEMD!
MYNDASAFN
GREINAR
UMHVERFISMAT

 

______________________________________________________________________________________

Fyrir rúmu ári skrifaði Gunnar Kristjánsson grein um viðhorf Íslendinga til óbyggða landsins almennt
í ljósi líðandi stundar. Þessi grein á einnig mjög vel við þegar verið er að velta fyrir sér framtíð Hengilssvæðisins:

Morgunblaðið þriðjudaginn 29. ágúst, 2006 - Aðsent efni

Stríð streymir Jökla

Eftir Gunnar Kristjánsson:
-----------

Lokaorð
Óbyggðirnar eru heilagur staður í vitund okkar Íslendinga. Svo var einnig á tímum þegar þörf
var á úrræðum til að bæta lífskjör þjóðarinnar eftir langvarandi fátækt og mótlæti. Nú eru aðrir
tímar. Ættum við ekki í framtíðinni að beina sjónum meira að verðmætum sem ekkert kosta en
hafa í för með sér farsælt og skapandi mannlíf? Væri ekki einn liðurinn í því einmitt að læra að
njóta náttúrunnar í fegursta landi heimsinsí stað þess að selja hana erlendum auðhringum á
niðursettu verði? Er freistingin ekki alltof augljós, er skammsýni stjórnmálamanna ekki alltof
átakanleg?
Ættu þessi tímamót ekki að verða til þess að stjórnmálamenn tækju sig á og reyndu að
endurskoða viðhorf sín til þróunar samfélagsins, skoða samhengið milli virkjana og lífsstíls,
huga að þeim dýrmæta fjársjóði sem er falinn í óbyggðum landsins - og í sálarlífi þjóðarinnar.
Hefur þjóðin ekki lengur efni á að unna undrum landsins? Hin tvíklofna afstaða Íslendinga til
óbyggðanna verður að taka á sig nýja mynd. Ástæðan er einfaldlega sú að ekki verður lengur
sleppt og haldið. Viljum við eiga óbyggðir eða ekki? Um þetta verður að nást þjóðarsátt því að
landið er sameign þjóðarinnar.
Að beisla jökulfljót eins og Jöklu er ögrandi verkefni í augum sumra - í annarra augum er það
hins vegar ein versta birtingarmynd orkufíkinnar afþreyingarmenningar á villigötum. Að ganga
meðfram Jöklu frá Kringilsárrana niður undir Sauðá, umlukinn þungum niði fljótsins sem rennur
í hrikalegum gljúfrum þar sem fegurstu blóminá jörðinni spretta - það er helgistund líkast.
Stríð streymir Jökla til sjávar og berst fyrir lífi sínu og óbyggðanna.

Smelltu hér til að lesa alla greinina


Gunnar Kristjánsson dr. theol. er prófastur í Kjalarnessprófastsdæmi og sóknarprestur
á Reynivöllum í Kjós.

TILBAKA