______________________________________________________________________________________
Sveitarfélagið Ölfus
Hafnarbergi 1
815 Þorlákshöfn
3. april 2008
Efni: Athugasemd við breytingu Aðalskipulags sveitarfélagsins Ölfuss 2002-2014–
atriði nr. 1 í auglýsingu er varðar Bitru; bygging allt að 135 MW jarðvarmavirkjun.
Ég undirritaður/undirrituð mótmæli breytingu Aðalskipulags sveitarfélagsins Ölfuss
2002 -2014– atriði nr. 1 í auglýsingu; 285 ha opnu, óbyggðu svæði á Bitru /
Ölkelduhálsi sem að hluta er á náttúruminjaskrá og einnig skilgreint sem grannsvæði
vatnsverndar, er breytt í iðnaðarsvæði fyrir jarðgufuvirkjun.
Hengilssvæðið og dalirnir austan, vestan og sunnan þess hafa lengi verið ein
helsta útivistarparadís íbúa höfuðborgarsvæðisins og er skilgreint sem útivistarsvæði,
staðfest af umhverfisráðherra í janúar 2005. Nú, þegar verið er að þétta byggð á
höfuðborgarsvæðinu svo gríðarlega sem raun ber vitni, byggja á öllum auðum blettum
og fækka útivistarsvæðum í þéttbýli, er brýnna en nokkru sinni að íbúar höfuðborgar-
svæðisins eigi kost á að njóta óspilltrar náttúru í hæfilegri dagsferðarfjarlægð frá
heimilum sínum. Þetta svæði er eitt örfárra í nágrenni höfuðborgarsvæðisins þar sem
hægt er að ganga um í friði og ró, njóta ótrúlega fjölbreyttrar náttúrufegurðar fjarri
amstri dagsins og síaukinni bílaumferð á höfuðborgarsvæðinu. Svæðið er aðgengilegt
fyrir alla hvort sem börn eða fólk með skerta gönguhæfni er á ferðinni.
Ferðaþjónustan er sú atvinnugrein á Íslandi sem er í hvað örustum vexti. Samkvæmt
spá ferðamálaáætlunar 2006-2015 mun sá vöxtur halda áfram. Rannsóknir hafa sýnt
að erlendir ferðamenn koma fyrst og fremst til Íslands til að njóta þeirrar náttúrufegurðar
sem landið hefur upp á að bjóða. Við auglýsum landið sem óspillta náttúruperlu og á
þeim svæðum sem það loforð stenst standa ferðamenn á öndinni yfir þeirri fegurð sem
við þeim blasir. Hengilssvæðið er einn þessara staða og vinsælt að fara þangað í
dagsferðir með erlenda ferðamenn. Margir ferðamenn gera stuttan stans á landinu og
þá er nauðsynlegt að geta sýnt þeim óspillta og sér íslenska náttúru sem næst
höfuðborgarsvæðinu.
Ég tel það vera okkar ábyrgð að varðveita slíkar náttúrperlur fyrir komandi kynslóðir
og legg til að í staðinn fyrir að breyta þessu frábæra útivistarsvæði í iðnaðarsvæði þá
verði breytingin fólgin í því að friðlýsa svæðið.
Þrátt fyrir áætlanir um að fyrirhuguð virkjunarmannvirki eigi að falla vel inn í landslagið
tel ég engan virkjunarkost á umræddu svæði ásættanlegan þar sem mannvirkjagerð á
svæðinu myndi óhjákvæmilega gjörspilla þeirri náttúruperlu sem hér er um að ræða.
Með von um árangur,